Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag um niðurstöðu útboðs á sænskum heimildarskírteinum (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa, í tengslum við væntanlega skráningu félagsins á Nasdaq markaðinn í Stokkhólmi. Sterkur áhugi var meðal almennra fjárfesta á útboðinu og var eftirspurn margföld á við framboð. Meira en 3.000 nýir hluthafar eignast nú hlut í Alvotech. Viðskipti með bréf Alvotech á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi hefjast mánudaginn 19. maí nk. undir auðkenninu „ALVO SDB“. Útboðið náði aðeins til fjárfesta í Svíþjóð og var tekið við tilboðum frá 9. maí sl. til hádegis í dag, 16. maí. Gengi í útboðinu verður 1.167,8 krónur (87,51 sænskar), sem jafngildir 90% af vegnu meðalverði hluta í Alvotech á tímabilinu 9.-16. maí. Ef vegið meðalverð á þessum tíma hefði verið lægra en lokagengi á íslenska markaðnum í dag, hefði lokagengi dagsins verið notað til viðmiðunar, en það reyndist vera 1.350 íslenskar krónur. Í boði voru alls 441.600 hlutir í Alvotech. Öllum bréfum sem voru í boði var úthlutað, til meira en 3.000 einstaklinga. Tekjur af sölunni að undanskildum sölukostnaði eru um 516 milljónir króna (39 milljónir sænskra). Skráningu Alvotech á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi er ætlað að auka sýnileika félagsins meðal markaðsaðila í Skandinavíu og Evrópu, auka veltu með bréf félagsins og breikka hluthafahópinn. Alvotech hefur fundið fyrir miklum áhuga stofnanafjárfesta í Skandinavíu og alþjóðlegum mörkuðum á að fjárfesta í evrópskum líftækni og lyfjafyrirtækjum, en öflug viðskipti eru á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi með hlutabréf fyrirtækja í þessum geirum. Um Alvotech Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea). Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, fjárfestasíðu, og almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið Benedikt Stefánsson, forstöðumaður [email protected]
Alvotech tilkynnir niðurstöðu útboðs í tengslum við skráningu félagsins á Nasdaq markaðinn í Stokkhólmi
You are reading a free article with opinions that may differ from the recommendation given by Kalkine in its paid research reports. Become a Kalkine member today to get access to our research reports, in-depth technical and fundamental research. Learn more
Start Your Free Trial Now!Download Free Report – Explore 3 Stock Ideas & Industry Insights
Unlock 3 stock ideas and key industry insights in our free report. This information is general in nature and does not consider your personal objectives, financial situation, or needs. It is not financial advice.
All investments involve risk—consider independent advice before making any investment decisions.
View 3 Research ReportsThis information, including any data, is sourced from Unicorn Data Services SAS, trading as EOD Historical Data (“EODHD”) on ‘as is’ basis, using their API. The information and data provided on this page, as well as via the API, are not guaranteed to be real-time or accurate. In some cases, the data may include analyst ratings or recommendations sourced through the EODHD API, which are intended solely for general informational purposes.
This information does not consider your personal objectives, financial situation, or needs. Kalkine does not assume any responsibility for any trading losses you might incur as a result of using this information, data, or any analyst rating or recommendation provided. Kalkine will not accept any liability for any loss or damage resulting from reliance on the information, including but not limited to data, quotes, charts, analyst ratings, recommendations, and buy/sell signals sourced via the API.
Please be fully informed about the risks and costs associated with trading in the financial markets, as it is one of the riskiest forms of investment. Kalkine does not provide any warranties regarding the information on this page, including, without limitation, warranties of merchantability or fitness for a particular purpose or use.
Please wait processing your request...